Talsvert tjón varð á innanstokksmunum þá sérstaklega vegna reyks, sóts og vatns en mikill þykkur svartu reykur myndaðist við brunann en eldur logaði m.a. í gardínum og tvíbreiðu rúmi í svefnherbergi en reykkafarar náðu rekja sig um húsið í gegnum reykinn og að upptökum eldsins.

Ljóst er að þarna mátti litlu muna að ekki færi illa því umrætt einbýlishús er timburhús. Heimilisfólk var í svefni en móðirin vaknaði við reykskynjara og náði að vekja börn sín og koma þeim út í tæka tíð. Slökkviliðsmenn og reykkafarar Brunavarna Rangárþings brugðust skjótt við og komu þannig trúlega í veg fyrir stórbruna. �?ljóst er um eldsupptök en þau er í svefnherbergi eins og áður segir en lögreglan á Hvolsvelli fer með rannsókn málsins.