Ágústa varð Íslandsmeistari í þrístökki með 11.28 m löngu stökki, í 60 m grindahlaupi hljóp hún til silfurverðlauna á tímanum 8.27 s og að lokum þeytti hún kúlunni 11.39 m og hlaut bronsverðlaun að launum.
�?rn Davíðsson stökk 1.85 m í hástökki og hlaut silfurverðlaun í mjög jafnri og spennandi keppni. Fjóla Signý Hannesdóttir lenti í 4. sæti í þrístökki með 10.53 m, í langstökki lenti hún í 5. sæti þegar hún sveif 5.04 m og bætti sinn fyrri árangur um 18cm, í 60m grindahlaupi hljóp hún í undanriðlum á tímanum 9,55 s en hún átti best 9.80 s síðan á Unglingameistaramótinu um síðustu helgi, í úrslitahlaupinu hljóp Fjóla Signý á tímanum 9.88 s og lenti í 6. sæti.
Dröfn Hilmarsdóttir lenti í 5. sæti í langstökki þegar hún stökk 5.03 m, í undankeppni langstökksins stökk Dröfn 5.07m sem er bæting hjá henni um 21cm. Dröfn bætti síðan sinn besta tíma í 60 m hlaupi, hún átti best 8.74 s en hljóp á tímanum 8.62s. Edda �?orvaldsdóttir stórbætti sinn besta árangur í 200 m hlaupi þegar hún kom í mark á tímanum 28.13 s en hún átti best 28,59 s.
Um næstu helgi munu þær Ágústa og Fjóla Signý taka þátt í Meistaramóti Íslands í fjölþrautum og spennandi að sjá hvort þær nái að bæta sinn besta árangur þar.