Nemendur lögðu mikla vinnu í verkin en hver þeirra vann eftir ákveðinni listastefnu og valdi sér listamann og málverk eftir hann. Nemendur prentuðu út myndir af þeim verkum sem þeir völdu sér og límdu hana á strigann og unnu svo með málverkið með því að ímynda sér hvernig listamaðurinn hefði haft málverkið ef það væri stærra. �?eir lögðu áherslu á að halda stílnum og að reyna að ná sömu litum, áferð og birtu og í upprunalega verkinu. Mismunandi var hvar á strigann nemendur staðsettu útprentunina eftir því hvernig þeim fannst málverkið þurfa að vaxa.

Sýningin stendur yfir út febrúar mánuð í Landsbankanum við Austurveg á Selfossi.