Árni er á áttræðisaldri en enn fullur athafnagleði eftir að hann náði góðri heilsu eftir mjög erfið veikindi fyrir nokkrum misserum. �?�?g kann afskaplega vel við mig á Eyrarbakka og fæ útrás fyrir athafnaþörf mín hér við þessa uppbyggingu á slipp- og hraðfrystihússlóðinni enda var starfsvettvangur minn hjá Landsbanka Íslands í rúm tuttugu ár í þorpunum þremur við hérna niður við ströndina.�? Árni þekkir því mjög vel til alls sem snýr að athafna- og mannlífinu á svæðinu.
Allt annað en fiskvinnsla og tengd starfsemi er framundan á þessu fyrrum athafnasvæði slipps og hraðfrystihúss sem eru númer 51 og 53 við Eyrargötu og eru um 6.000 fermetrar. Árni og félagar fylltu húsið í haust af fjallabílum, fellihýsum og tjaldvögnum en þetta er aðeins tímabundin nýting á húsnæðinu. Verkfræðistofan �?verá er um þessar mundir að skila fyrstu drögum að deiliskipulagi fyrir þetta svæði. Hugmyndin er að með tímanum verði vinnsluhúsin hér baka til rifin og síðan að byggja þar íbúðarhús við sjóvarnargarðinn þannig að þau verði það há að sjá megi út á hafið.
Jafnvel er rætt um að þetta gætu verið hús fyrir eldri borgara enda stendur Dvalarheimili aldraðra Sólvellir rétt handan Eyrargötunnar. Árni kallar það væntanlega ‘Alsælu fyrir aldraða’. Byggingarnar næst götunni munu standa áfram en taka breytingum. Talað er um að nýtingarhlutfallið á svæðinu verði aðeins 0.3 – 0.4 á meðan nýtingarhlutfallið við uppbygggingu hins nýja miðbæjar á Selfossi er 1.9. �?Mér finnst þar muna full miklu, en vona að menn sjái að ekkert samræmi er í því. Heildarkostnaður við þessar framkvæmdir allar, sem munu taka mörg ár er áætlaður 1 til 1.5 milljarðar króna,�? segir Árni.
Nú síðustu vikur og mánuði hafa Árni og félagar unnið að breytingum í vestasta hluta byggingarinnar við Eyrargötuna þar sem áður voru skrifstofur, starfsmannaðstaða og kaffistofa. �?ar er verið að útbúa fjórar íbúðir sem hver um sig er af stærðinni 60 – 70 fermetrar og verða til sölu eða leigu. �?essi hluti hússins er frá 1962 að sögn Árna og nokkuð vel byggt enda fyrir tíma alkalí skemmda.
Ásamt Árna Valdimarssyni hafa verið við störf á staðnum þeir; �?lafur Gunnarsson, þúsund þjala smiður frá Stokkseyri, Róbert Wisniewski, mublusmíðameistari frá Póllandi sem nú býr á Selfossi og Gísli Nilsen vélstjóri á Eyrarbakka. Gísli hefur unnið í frystihúsinu frá árinu 1982 og hafur starfsemin verið hjá fjórum fyrirtækjum þennan tíma það er Hraðfrystistöð Eyrarbakka, Suðurvör, Bakkafiskur og Ísfold. BIB