Eins og kunnugt er voru hús dönsku verslunarinnar á Eyrarbakka rifin árið 1950 og af og til hafa komið fram hugmyndir um endurbyggingu þeirra frá þeim tíma. Menningarnefnd Sveitarfélagsins Árborgar styrkti verkefnið af myndarskap á sl. ári.
Á kynningarfundinum mun Hjörleifur Stefánsson arkitekt gera grein fyrir athugun sinni og fleiri sérfræðinga á hugmyndinni um endurbyggingu Vesturbúðarinnar. Fundurinn fer fram í samkomuhúsinu Stað á Eyrarbakka og hefst hann kl. 20:00.

Fréttatilkynning.