Haldi Sjálfstæðismenn áfram að stjórna verður ekkert gert í samgöngumálum Vestmannaeyja næstu fjögur árin. �?eir hafa leikið þann leik ítrekað að lofa öllu fögru; framkvæmdum og lífskjarabótum fyrir kosningar en draga svo þau loforð til baka á innan við ári frá kosningum. �?trétt blá höndin kreppist í hnefa á nokkrum mánuðum.
�?trúleg afrekaskrá
Afrekaskráin er ótrúleg sé hún tekin saman yfir undanfarin ár. Salan á Búnaðarbanka, Landsbanka, Landssímanum og Íslenskum Aðalverktökum til einkavina undir kostnaðarverði. �?úsundir einstaklinga eru á biðlistum í heilbrigðiskerfinu, gamla fólkið er hlunnfarið, geðfötluð börn fá ekki greiningu og meðferð, ríkið stendur í ítrekuðum málaferlum við öryrkja. Loforð í samgöngumálum hafa verið svikin, gegndarlaus stóriðja hefur leitt af sér þenslu og verðbólgu, fólki fækkar á landsbyggðinni, bændur bregða búi og hæstu vextir og matvælaverð í Evrópu eru viðtekin sannindi. Stuðningurinn við Íraksstríðið, fjölmiðlalögin og klúðrið í varnarmálum virðist ekki vefjast fyrir kjósendum Sjálfstæðisflokksins. Ef þið kjósið Samfylkinguna. �?á fer herinn, sögðu Sjálstæðismenn við kjósendur á Suðurnesjum fyrir síðustu kosningar! Hver er aftur staðan núna? �?eir hafa skipað frændur og einkavini í hæstarétt sem svo taka létt á olíubarónum sem svindluðu á almenningi um árabil. �?eir stóðu fyrir Baugsmálinu, þeir brutu jafnréttislög og sögðu þau barn síns tíma. �?eir bera ábyrgð á Byrgismálinu.
Ábyrgur valkostur
�?g skora á þá sem eru að gefa sig upp í stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn í skoðanakönnunum að yfirgefa hriplekt skip Sjálfstæðisflokksins og kjósa á kjördag eitthvað sem gerir meira gagn. �?g vil benda ykkur á að Samfylkingin er ábyrgur valkostur sem ekki hefur fengið að reyna sig við stjórn landsins.
Samfylkingin er lýðræðis- og umbótaflokkur sem berst fyrir neytendur og bætt velferðarkerfi. Hún berst fyrir almannahagsmunum, ekki sérhagsmunum. Hún skilur réttlætishugtakið. Hún er með jákvæða stefnu í málefnum fjölskyldunnar, heimilanna, fólksins í landinu. Hún er friðarsinnuð, hún er alþjóðasinnuð. Hún er jafnaðarflokkur.
Hún er allt það sem Sjálfstæðisflokkurinn er ekki. Við ætlum að kaupa nýjan Herjólf og klára rannsóknarvinnu vegna jarðganga til Vestmannaeyja. �?að er loforð og við munum standa við það.
Róbert Marshall, skipar 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.