Fyrri hálfleikur var afar slakur af hálfu ÍBV og reyndar beggja liða. Eyjamenn sköpuðu sér fá færi og reynd mikið langa bolta fram völlinn í stað þess að láta boltann ganga innan liðsins. Sóknarleikurinn var fyrir vikið ekki upp á marga fiska og færin eftir því.

Gestirnir voru í svipuðum takti en uppskáru þó eitt mark og líklega eitt ódýrasta mark sem skoraði hefur verið á Hásteinsvelli. Blaðamaður hefur gengið út frá því alla sína hundstíð að boltinn verði að fara inn fyrir marklínuna svo að mark sé talið gilt en fær nú að efast um þessa sannfæringu sína. Fyrsta mark leiksins kom á 36. mínútu þegar boltinn barst inn í vítateig gestanna, þar börðust varnarmenn ÍBV og sóknarmenn �?órs um boltann sem barst að lokum til Hrafns Davíðssonar, markvarðar sem handsamaði hann í rólegheitunum. �?órsarar voru ekki sáttir og heimtuðu vítaspyrnu, Erlendur Eiríksson dómari leiksins var ekki viss en aðstoðardómarinn tók sig þá til, öllum að óvörum og dæmdi mark og var án efa sá eini á vellinum sem sá boltann fara inn fyrir línuna. Sóknarmenn �?órs voru í það minnsta ekki að fagna marki og Hrafn sagði eftir leikinn að boltinn hefði verið langt frá því að fara inn fyrir. �?trúleg uppákoma en staðan í hálfleik var 0:1.

Í síðari hálfleik færðist hins vegar meira líf í Eyjamenn og síðasta hálftímann var nánast um einstefnu að ræða. Eyjamenn fengu hvert dauðafærið á fætur öðru, Bjarni Hólm Aðalsteinsson skallaði yfir af markteig, �?órarinn Ingi Vilhjálmsson skaut himinhátt yfir einn gegn markverði og alls fengu Eyjamenn fimm til sex dauðafæri sem þessi til að skora en ekkert gekk. �?að var ekki fyrr en sex mínútum fyrir leikslok að ísinn var brotinn. �?á barst boltinn inn í vítateig gestanna þar sem Andri �?lafsson bjó sig undir að spyrna að marki en var tæklaður illilega aftan frá. Dómari leiksins dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu og hefðu með réttu átt að vísa varnarmanni �?órs af velli en lét það ógert og var sú ákvörðun í takti við dómgæslu leiksins. Bjarni Hólm skoraði af miklu öryggi úr spyrnunni og jafnaði metin.

Gestirnir voru svo nærri búnir að stela sigrinum þegar sóknarmaður þeirra átti laflaust og afleitt skot sem Hrafn misreiknaði illilega. Boltinn lak í innanverða stöngina og dansaði á marklínunni en fór sem betur fer ekki inn. Síðasta færið átti svo Ingi Rafn Ingibergsson þegar hann slapp inn fyrir vörn gestanna en markvörður �?órs bjargaði með góðu úthlaupi. Lokatölur því 1:1 og óhætt að segja að úrslitin gefi engan veginn rétta mynd af gangi leiksins.

Eyjamenn geta nagað sig í handarbökin í leikslok en þeir léku þó mjög vel í síðari hálfleik. Ungu leikmennirnir fengu sína eldskírn og stóðu sig vel. Heimir Hallgrímsson gerði breytingar á liði ÍBV í síðari hálfleik sem heppnuðust vel en þá fór fyrirliðinn Bjarni Hólm Aðalsteinsson í fremstu víglínu. �?að segir hins vegar mikið um framherjavandræði ÍBV að varnarsinnaður miðjumaður og miðvörður skipti með sér framherjastöðunni og ljóst að úr þessu verður að bæta.

Lið ÍBV (4-5-1) Hrafn Davíðsson, Arnór �?lafsson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Páll Hjarðar, Anton Bjarnason, Ingi Rafn Ingibergsson, Pétur Runólfsson, Yngvi Borgþórsson (Jonah D. Long, 46.), Bjarni Rúnar Einarsson (�?órarinn Ingi Valdimarsson, 57.), Stefán Hauksson (Andrew Mwesigwa, 57.), Andri �?lafsson.

�?notaðir varamenn: Kolbeinn Arnarson (m), Egill Jóhannsson.

Mark ÍBV: Bjarni Hólm Aðalsteinsson (84. vsp)

Áhorfendur: 400