Bílnum var lagt á föstudag en á sunnudag sáu lögreglumenn frá Selfossi að búið var að brjóta rúður í bifreiðinni og beygla hana að framan, greinilega með grjótkasti, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Einnig var búið að færa bílinn til og stela tækjabúnaði og skráningarnúmerum. Lögreglan á Selfossi skorar á þá sem geta veitt upplýsignar um málið að hafa samband í síma 480 1010.