Fréttir leituðu til fjögurra nýstúdenta, þeirra Grétars Stefánssonar, Finnboga Friðfinnssonar, Heklu Hannesdóttur og Helenu �?orsteinsdóttur og ræddu við þau um námið í FÍV, félagslífið og framhaldið. �?ll eiga þau það sameiginlegt að stefna að framhaldsnámi en öll ætla þau að taka sér frí í eitt ár.
Finnbogi Friðfinnsson: Námsframboðið fullnægjandi fyrir mig
Finnbogi Friðfinnsson útskrifaðist af Náttúrufræðibraut frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum á laugardag. Finnbogi hefur verið áberandi í félagslífi skólans undanfarin ár, var m.a. formaður Nemendafélagsins og fékk viðurkenningu fyrir félagsleg störf við útskriftina. Finnbogi hélt ennfremur útskriftarræðu fyrir hönd stúdenta og þótti ræðan bráðsmellin en Finnbogi byrjaði á frumsömdu ljóði, �?Fluttur að heiman�? sem fær að fljóta með hér.
Fluttur að heiman
Lít ég til baka,
sit um stund.
Hvern er að saka?
�?etta skref þarf að taka
Búa einn og vera alltaf seinn.
�?vo þvott og þykja hot.
Borga og varla torga.
Einn og sitjandi
fá aldrei gest.
Alltaf vitandi,
Hótel mamma er alltaf best.
Finnbogi sagðist alltaf hafa verið ákveðinn í að setjast á skólabekk í FÍV. �?Staðsetning skólans réði miklu því ég vildi vera áfram hér í Eyjum. Hér eru allir félagarnir og þeir voru allir á leið í skólann og það skipti líka miklu. Svo fannst mér námsframboðið fullnægjandi þegar ég byrjaði en ég fór á náttúrufræðibraut. �?g hefði reyndar viljað taka ýmislegt fleira, meira af eðlisfræði og stærðfræði en það var bara ekki í boði,�? sagði Finnbogi.
�?að er mikið stökk að fara úr grunnskóla og í framhaldsskóla en Finnbogi segist hafa haft gaman af því að taka þetta skref. �?Busavígslan var náttúrulega bara snilld og góð leið til að brjóta ísinn. En svona almennt þá fannst mér mun skemmtilegra í framhaldsskóla en í grunnskóla. Í Framhaldsskólanum færðu mun meira frelsi. �?að er reiknað með því að þú hafir ákveðinn aga í náminu og það er sett í þínar hendur á meðan að í grunnskólanum er meira hugsað fyrir þig. �?g held að flestir mínir félagar séu á sömu skoðun, framhaldsskólinn var skemmtilegri án þess að ég sé endilega að segja að grunnskólinn hafi verið eitthvað leiðinlegur. �?að var reyndar einn úr vinahópnum sem fór úr FÍV yfir í MH en hann útskrifaðist reyndar frá FÍV. Efnafræðibrautin í MH er víst mjög góð og hann vildi bara bæta við sig í efnafræði en hafði tekið stærstan hluta námsins hér.
Viðtölin birtast í heild sinni í Fréttum á morgun.