Fólkið í þorpinu af nemendum 1. �? 7. bekkjar og Húsbandinu sem er hljómsveit skipuð nemendum úr 9. og 10. bekk sem stofnuð var af þessu tilefni. 8. bekkur frumsýndi stuttmynd sem þau höfðu gert í vetur sem fjallaði um lífshlaup þeirra, 9. bekkur flutti söngleikinn Fuglabrúðkaupið en textana höfðu krakkarnir þýtt úr þýsku yfir á íslensku í þýskuvali í vetur.
Nokkrar stelpur úr 9. bekk fluttu söngatriði sem þær höfðu áður flutt fyrir hönd Félagsmiðstöðvarinnar á Hellu í Samfés keppninni í vetur og þar komust þær í úrslitakeppnina þó ekki hafi þær hreppt verðlaunasæti. Einnig var leikatriði frá leiklistarvalinu og tónlistaratriði frá tónlistarvalinu. Í hléi bauð síðan 10. bekkur upp á glæsilegt kökuhlaðborð en var það liður í fjáröflun þeirra fyrir útskriftarferðalag. Skólablaðið Ýmir var einnig að koma út og var það til sölu á hátíðinni. Vel var mætt á hátíðina og skemmti fólk sér vel.
Á myndinni eru nemendur í 1. og 2. bekkur að syngja lagið Ef þú ert súr”.
“