Opinn fundur á vegum Félags hrossabænda og Bændasamtaka Íslands um málefni hrossaræktarinnar verður haldinn í Þingborg í kvöld fimmtudaginn 3. apríl, kl. 20:30.
Frummælendur á fundinum verða þeir Kristinn Guðnason formaður Félags hrossabænda og fagráðs í hrossarækt og Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ.