Úlfar Finnbjörnsson meistarakokkur hélt matreiðslunámskeið fyrir fanga á meðferðarganginum á Litla-Hrauni í síðustu viku.
Farið var yfir helstu atriði varðandi meðferð, geymslu og matreiðslu nokkurra fisktegunda að ósk þeirra sem þar dvelja. Þá fór Úlfar yfir helstu atriði varðandi ræktun kryddplantna. Námskeiðið er haldið í samstarfi við Gestgjafann.