Lögreglumenn á Selfossi stöðvuðu um 200 ökumenn á Suðurlandsvegi við Biskupstungnabraut á laugardagsmorgni á milli kl. 07:30 og 11:00. Þetta var gert til að kanna ástand ökumanna og ökutækja. Allir bílstjórarnir voru fengnir til að blása í áfengismæli. Einn stóðst ekki prófið. Hann var tekinn úr umferð og blóðsýni tekið frá honum sem sent verður í rannsókn.