Föstudaginn 20. júní sl. höfðu starfsmenn Fiskistofu samband við lögreglu og óskaði eftir aðstoð vegna gruns um að verið væri að landa afla framhjá vigt. Við rannsókn lögreglu kom í ljós að í einu kari var um 250 kg. af humri, en ofan á humarinn hafði verið settur skötuselur. Við nánari leit í veiðafærahúsi útgerðarinnar fannst um 250 til 300 kg. af humri sem landað hafði verið framhjá vigt. Skipstjóri bátsins viðurkenndi brot sitt og mun mál hans fara hefðbundna leið í réttarkerfinu.