Framkvæmdir við tvöföldun Suðurlandsvegar hefjast á næsta ári. Kristján L. Möller samgönguráðherra segir að ástæðu þess að ekki hafi verið ákveðið að ráðast fyrst í vegabætur milli Hveragerðis og Selfoss, þar sem flest slysin verða megi rekja til þess að sveitarstjórnir á svæðinu hafi ekki lokið sinni skipulagsvinnu. Undirbúningur að tvöföldun vegarkaflans sé þó í fullum gangi þrátt fyrir tafir að hálfu sveitarfélaganna.