Víkingur �?. – Selfoss föstudaginn 29. ágúst kl 18.30
Selfyssingar unnu góðan 4-1 sigur á Njarðvíkingum í síðustu umferð og eru því með fimm stiga forskot á Stjörnuna, sem er í 3. sæti þegar fjórar umferðir eru eftir. Stjarnan gerði 0-0 jafntefli við Víking í Ólafsvík, en Víkingar eru einmitt næstu mótherjar okkar nú. Sá leikur fer fram í Ólafsvík föstudaginn 29. ágúst kl […]
Framkvæmdir hafnar í Bakkafjöru
Stórvirkar vinnuvélar og mannafli er kominn í Bakkafjöru þar sem hafnar eru framkvæmdir við Landeyjahöfn. Áætlað er að verkinu verði lokið í júlí 2010. Samningur milli Vegagerðarinnar, Siglingastofnunar og Suðurverks hf. um gerð Landeyjahafnar var undirritaður fyrr í mánuðinum. Tilboð Suðurverks hljóðaði upp á um 1,9 milljarð króna sem er 60% af kostnaðaráætlun. (meira…)
Nýtt gólf á Básaskersbryggju

Að undanförnu hefur verið unnið að endurbótum á Básaskersbryggju. Í fyrra voru rekin niður stálþil, en á þessu ári hefur verið unnið við sjálft bryggjugólfið, lagnir og yfirborð, sem verður úr steinsteypu. Verktaki að síðari verkhlutanum var fyrirtækið 2Þ. (meira…)
Saga Búnaðarsambands Suðurlands komin út
Ný bók um 100 ára sögu Búnaðarsambands Suðurlands er komin út. Stjórn BSSL ákvað árið 2002 að ráðist skyldi í að skrá 100 ára sögu félagsins og fékk Pál Lýðsson, sagnfræðing og bónda í Sandvík, til verksins. Páll lést í vor áður en bókin var tilbúin og tók sonur hans Lýður, þá við verkinu. (meira…)
Réttardagarnir haustið 2008
Listi yfir fjár- og stóðréttir fyrir haustið 2008 hefur verið gefinn út og eru fyrstu réttirnar að því er virðist fjárrétt, í Mýrararétt í Bárðardal, S.-Þingeyjarsýslu, strax á laugardag um næstu helgi en listinn er hér eftirfarandi. Það er Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands sem hefur tekið listann saman. (meira…)
Hætta við sólarkísilverksmiðju í �?orlákshöfn
Norska fyrirtækið REC Group er hætt við að reisa sólarkísilverksmiðju í Þorlákshöfn, eins og til stóð, og ætlar í stað þess að reisa hana í Kanada. Rætt hafði verið um að fyrirtækið fengi rösklega hundrað hektara lóð í Þorlákshöfn og starfsmenn yrðu um 300. (meira…)
39 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur
Síðustu viku og um helgina voru 39 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur. Öflugt umferðareftirlit er sýnilega að skila sér á Suðurlandsvegi. Af þessum 39 voru 26 þeirra á ferð um Suðurlandsveg í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. (meira…)