Sæt hefnd í dag

Eyjamenn komu svo sannarlega fram hefndum eftir ófarirnar í gær þegar liðið tapaði óvænt á heimavelli gegn ÍG frá Grindavík 68:81. Leikmenn ÍBV mættu mjög ákveðnir til leiks í dag, tóku strax öll völd á vellinum og unnu að lokum 125:87 eftir að hafa verið yfir í hálfleik, 61:35. (meira…)
�?g er af sama sauðahúsi og Sigmund, vil gjarnan vekja þjóðina til umhugsunar um hvernig komið hefur verið fram við hann

Sigmund okkar Jóhannsson er hættur að teikna skopmyndir fyrir Morgunblaðið. Það er eftirsjá í þessum snjalla teiknara og margir ekki kátir með hvernig hann lauk störfum eftir nærri 45 ára starf. Ingi Jensson sendi okkur þessa mynd til birtingar og segir hún allt sem segja þarf. (meira…)
Ullarverð til bænda hækkar um 24%
Ákveðið hefur verið að ullaverð til bænda hækki um 24 %. frá því í fyrra. Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Landssambands sauðfjárbænda, segir bændur séu nokkuð ánægðir með þetta verð. Hækkunin sé alla vega meiri en á dilkakjöti og eins og nú árar geta menn ekki annað en verið ánægðir með þessa hækkun. (meira…)
Andlit Annþórs verður á húsi Listasafns Reykjavíkur
Andliti handrukkarans Annþórs Kristjáns Karlssonar verður varpað á hús Listasafns Reykjavíkur. Annþór er ásamt fleirum þáttakandi í myndlistarsýningunni „Allir gera sem þeir geta sem sýnd hefur verið í Listasafninu undanfarnar vikur. Listamennirnir á bakvið sýningunnar heita Ólafur Ólafson og Líbía Castro. “ (meira…)