Karen Viðarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarleikskólastjóri í Krakkaborg í Flóahreppi.

Hún hefur gegnt starfi sérkennslustjóra við leikskólann síðan í byrjun ágúst og mun gera það áfram ásamt starfi aðstoðarleikskólastjóra. Ekki hefur verið starfandi aðstoðarleikskólastjóri fyrr við Krakkaborg og á heimasíðu Flóahrepps er Karen boðin velkomin til nýrra ábyrgðarstarfa innan leikskólans.