Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 77.300 og jukust um tæplega 2% frá nóvember 2007 þegar gistinætur voru 76.000. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar.

Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurlandi og Austurlandi eða um 30% miðað við nóvember 2007. Gistinóttum á Suðurlandi fjölgaði úr 5.700 í 7.400 eða um 30%