Innvigtun mjólkur til samlaga innan Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði var rúmar 126 milljónir lítra árið 2008 en svo mikil hefur innvigtunin ekki orðið áður í sögunni. Þar með var metið frá 2007 slegið, þá var innvigtunin 124,8 milljónir lítra. Það verður því ekki annað sagt en að framleiðslan hafi gengið vel undanfarin ár, enda hafa flest náttúruleg skilyrði hennar verið hagfelld. Því miður er ekki hægt að segja það sama um hin efnahagslegu.
Annars eru fimm mestu innvigtunarárin frá því að slík samantekt hófst árið 1959 eftirfarandi: