Vinkonurnar Fanndís og �?uríður veiddu makríl í Vestmannaeyjahöfn

Svo virðist sem allt sé vaðandi í makríl við Vestmannaeyjar en eins og kunnugt er voru makrílveiðar bannaðar frá og með gærdeginum. Í gær fréttist af stangveiðimönnum sem veiddu makríl rétt austan við Heimaey og í dag litu tvær ungar stúlkur við á ritstjórn Eyjafrétta en þær höfðu báðar veitt makríl í Vestmannaeyjahöfn. (meira…)
Allir vilja á �?jóðhátíð

Dömurnar hjá Flytjanda við Sundahöfn eiga í nægu að snúast þessa stundina. Flytjandi er að selja ósóttar pantanir með Herjólfi til Vestmannaeyja um Verslunarmannahelgina. „Það var byrjað að bíða hérna klukkan hálf sex, en það er eitthvað farið að minnka núna, segir ein stúlkan í þjónustuverinu og segir að miðunum sé eitthvað farið að fækka.” […]
Ljósmyndamaraþon í Nýheimum á Höfn
Ljósmyndir frá ljósmyndamaraþoni sem fór fram á Humarhátíð á Höfn í Hornafirði um nýliðna helgi verða áfram sýndar í Nýheimum út vikuna. Keppendur þurftu að skila af sér 10 myndum um mismunandi þemu og fengu til þess ákveðinn tíma. (meira…)
Hafa beðið síðan þrjú í nótt eftir miða á �?jóðhátíð
Örtröð er nú við afgreiðslu Flytjanda við Klettagarða í Sundahöfn í Reykjavík þar sem hátt í þrjú hundruð unglingar hafa verið að safnast saman í nótt til að tryggja sér síðustu miðana í Herjólf til Vestmannaeyja um þjóðhátíðina. Miðarnir eru seldir þar og byrjuðu unglingar að safnast þar saman um klukkan þrjú í nótt. (meira…)
Göngustígar endurbættir á Selfossi
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða vinnur nú að endurbótum á göngustígum í Árborg í kjölfar útboðs á verkinu fyrr í sumar. Í byrjun vikunnar hófst vinna við endurbætur á svonefndum Rimastíg, sem liggur frá Langholti að Norðurhólum og miðar verkinu vel. (meira…)
Rauðhetta og félagar á Stakkó

Næstkomandi sunnudag mun Leikhópurinn Lotta sýna nýjustu uppfærslu sína, Rauðhettu, á Stakkó. Sýningin hefst klukkan 13.00. Sjóvá gefur viðskiptavinum sínum í Stofni tvo miða fyrir börn á sýninguna. Leiksýningin fer fram utandyra og verða áhorfendur því að klæða sig eftir veðri og taka jafnvel með sér teppi ef kalt er í veðri. (meira…)