Hermann skoraði gegn Burnley

Eyjapeyinn Hermann Hreiðarsson sýndi hversu mikilvægur hann er enska úrvalsdeildarliðinu Portsmouth þegar liðið vann Burnley fyrr í dag. Hermann fór fyrir sínum mönnum, byrjaði á því að fiska vítaspyrnu sem reyndar nýttist ekki en bætti svo um betur með því að skora fyrra mark af tveimur í 2:0 sigri Portsmouth. Mark Hermanns var sérlega glæsilegt, […]
Mikilvægir útileikir hjá ÍBV í dag

Bæði karla og kvennalið ÍBV í mfl. leika á laugardaginn mikilvæga útileiki. Strákarnir leika við ÍR kl.13:30 í Austurbergi. En þessi lið eru í mikilli baráttu um að komast í Úrslitakeppnina. ÍBV sigraði heimaleikinn 32-25. Stelpurnar leika gegn HK kl.12:00 í Digranesi. Þar verður hart barist. Hvetjum við alla Eyjamenn á fasta landinu að mæta […]