Það er ekki á hverjum degi sem húsgögn eftir íslenska hönnuði komast í heimspressuna. Emilía Borgþórsdóttir, frá Vestmannaeyjum, hannaði stólinn Surt og sýndi hann á hönnunar­sýningunni International Cont­em­porary Furniture Fair (www.icff.com), í New York á dögunum. Þetta kemur fram í Pressunni þar sem segir að blaðamenn hafi ekki haldið vatni yfir stólnum enda sé hann góður letistóll, öfugt við mörg yfirhönnuð húsgögn er þessi stóll þæg­indin uppmáluð.