Sjórinn stútfullur af aflóga, eldgömlum bölum á strandveiðum

Góðan dag yndislega fólk, þetta er búið að ganga vel hjá okkur á makrílnum og erum við búnir að fylla afturlestina í þessum túr og byrjaðir á þeirri fremri. – En góðverk dagsins var að koma til hjálpar litlum bát, sem verið var að ferja milli strandveiðikerfa. Sem sagt milli vesturs og austurs með tilheyrandi […]
Allt á fullum svíng

Jæja nú snýst allt á fullu í Eyjum. Makríllinn flæðir í vinnslurnar. Humar og botnfiskur flæðir líka. Jon Vídalín er í landi með fullfermi af karfa, um 120 tonn. Brynjólfur er að landa humri og fiski. Drangavík væntanleg í dag með fullt skip um 80 tonn. Og vaktir í makrílnum hjá VSV, Ísfélagi og Godthaab. […]
Að dreifa eymdinni sem jafnast

Eftir að hópur hagfræðinga gaf frumvarpi sjávarútvegsráðherra um breytingar á fiskveiðistjórnuninni falleinkunn er viðkvæðið í stjórnarliðinu, einkum hjá þingmönnum og ráðherrum Vinstri grænna, að málið snúist um „fleira en hagfræði“. Með því er í raun verið að segja að ekki eigi að reka sjávarútveg á Íslandi með hagkvæmasta mögulega hætti. (meira…)
Víst þarf að breyta kvótakerfinu

Undanfarna tvo daga hefur dunið á landsmönnum síbylja úr öllum fjölmiðlum þar sem hamast er gegn áformuðum breytingum á kvótakerfinu. Tilefnið er skýrsla svonefndar sérfræðinganefndar um hagræn áhrif af tillögum ríkisstjórnarinnar. Leiddur er fram hver kvótastaurinn á fætur öðrum til þess að vitna um „atlöguna að sjávarútveginum“ sem felst í því að breyta framsali og […]
Vestmannaeyjar verður gestasveitafélag á Sólseturshátíðinni í Garðinum um næstu helgi.

Helgina 24. – 26. júní heldur sveitafélagið Garður sína árlegu sólseturshátíð. Að þessu sinni bauð Ásmundur Friðriksson bæjarstjóri Vestmannaeyjum að vera gestasveitafélag. Vestmannaeyjabær kemur að flutningi á tónlistarfólki, en valinn hópur tónlistarmanna frá Eyjum ætlar að troða upp í Garðinum. Stærsti hluti þess tónlistarfólks, sem troðið hefur upp á Eyjakvöldunum á kaffi Kró sl. vetur […]
ÍBV fær írskan mótherja í Evrópukeppninni í knattspyrnu

Í morgun var dregið í forkeppni 1. umferðar Evrópukeppni UEFA. Mótherjar ÍBV verður írska knattspyrnuliðið Saint Patrick’s Athletic frá Dublin. Fyrri leikur ÍBV og Saint Patrick’s verður á Vodafone vellinum að Hlíðarenda fimmtudaginn 30. júní og sá síðari í Dublin á Írlandi fimmtudaginn 7. júlí. (meira…)