Meistaraefnin stálheppin í Eyjum

Meistaraefnin í Stjörnunni frá Garðabæ geta prísað sig sæla með að hafa unnið ÍBV í 15. umferð Pepsídeildar kvenna en liðin áttust við í blíðunni á Hásteinsvelli í kvöld. Lokatölur urðu 1:2 Stjörnunni í vil en Eyjastúlkur geta svo sannarlega nagað sig í handarbökin fyrir slæma nýtingu á mörgum dauðafærum. Staðan í hálfleik var 0:2 […]

Fjögur handtekin vegna fíkniefnamáls

Um miðjan dag voru fjórir aðilar handteknir af lögreglunni í Vestmannaeyjum þar sem nokkuð magn af fíkniefnum fundust í herbergi á gistiheimili þar sem þau gistu. Einnig fann fíkniefnahundurinn Luna lítisháttar til viðbótar af fíniefnum í bifreið hjá þessum aðilum. Um var að ræða rúm 50 grömm af maríúana. Við skýrslutöku neituðu þau að eiga […]

Florentina búin að skrifa undir

Handboltamarkvörðurinn sterki Florentina Stanciu er búin að skrifa undir eins árs samning hjá ÍBV og spilar með kvennaliði félagsins næsta vetur. Florentina er öllum hnútum kunnug hjá ÍBV enda lék hún um tveggja ára skeið með félaginu og þótti standa sig mjög vel. Florentina tók sér frí frá handboltaiðkun síðasta vetur vegna barneigna en snýr […]

Meistaraefnin úr Garðabæ í heimsókn í kvöld

Kvennalið ÍBV tekur á móti Stjörnunni í kvöld klukkan 18:00 á Hásteinsvellinum. Stjarnan er í efsta sæti deildarinnar, með fjögurra stiga forskot á Val þegar fjórar umferðir eru eftir en Valur hefur leikið leik meira. ÍBV er svo í þriðja sæti, tólf stigum á eftir Stjörnunni og á aðeins tölfræðilegan möguleika á Íslandsmeistaratitlinum. Baráttan um […]

Gekk eiginlega allt upp

Eyjapæjan Kristín Erna Sigurlásdóttir er besti leikmaður 14. umferðar á Fótbolta.net en hún átti frábæran leik og skoraði mark þegar ÍBV sigraði KR 4-0. „Ég var nokkuð sátt með mína frammistöðu í leiknum. Leikmenn í kringum mig voru líka að spila vel og það hjálpar auðvitað”, sagði Kristín Erna aðspurð um eigin frammistöðu í leiknum. […]

Nemendafjöldi stendur í stað í fyrsta skipti frá 2006

Grunnskóli Vestmannaeyja var settur á þriðjudag og kennsla í skólanum hófst daginn eftir. Nemendafjöldi stendur nú í stað sem er ánægjulegt þar sem nemendum hefur fækkað undanfarin ár. „Nú eru 582 nemendur skráðir í skólann sem er nokkurn veginn sama tala og í fyrra en frá því ég kom að skólanum árið 2006 hefur nemendum […]

Herjólfdagur á morgun, laugardag

„Eimskip vill þakka viðskipta­vinum Herjólfs fyrir frábært sumar og bjóða þeim um leið að fagna með okkur laugardaginn 27. ágúst,“ segir í frétt frá félaginu. Hoppukastali verður fyrir börnin SS pylsur, klakar frá Kjörís og gosdrykkir frá Ölgerðinni. „Við vonumst til þess að sem flestir viðskiptavinir okkar sjái sér fært að fagna með okkur frá […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.