Dýpkunarkostnaðurinn fari í að lækka fargjöld með Herjólfi

Hún Landeyjahöfn var mikil samgöngubót, þegar hún var tekin í notkun í júli árið 2010 og er það enn, – þegar hún virkar. En nú er ég farinn að efast um að það sé réttlætanlegt að halda áfram á sömu braut, – að hafa tvö dýpkunarskip að störfum, yfir þennan árstíma, þegar ein lægð getur […]

Skandia fékk gat á stefnið

Skandia lenti í hremmingum þegar hún var við dýpkun í Landeyjarhöfn á laugardagsmorgun. Skipið var á leið inn í höfnina þegar það fékk á sig brot bakborðsmegin með þeim afleiðingum að það kastaðist á hafn­argarðinn og gat kom á stefni skipsins, stjórnborðsmegin. (meira…)

Bjartar vonir �?? Eyjalögin öðlast nýtt líf

Ný hljómsveit sem nefnist Tríó Glóðir hefur nú stigið fram í sviðsljósið sem með blíðum tónum Oddgeirs Kristjánssonar kemur öllum í rétta stemningu. Tríóið hefur nú gefið út sína fyrstu breiðskífu, Bjartar vonir. Á plötunni eru margar af þekktustu perlum Oddgeirs, eins og Ég veit þú kemur og Ágústnótt, í bland við minna þekkt lög. […]

Veiðigjald útgerða hækkað úr 650 milljónum í 9 milljarða á sjö árum

Veiðigjald, sem lagt er á útgerðir landsins, hefur fimmfaldast á undanförnum árum, úr 649 milljónum króna fiskveiðiárið 2005-2006 í rúmlega 3 milljarða króna fiskveiðiárið 2010-2011. Áætlað er að tekjur ríkissjóðs af veiðigjaldi á yfirstandandi fiskveiðiári hækki um 50% frá því síðasta og verði um 4,5 milljarðar króna. Þetta kemur fram í svari sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn […]

Leikmeður Selfoss hyggst kæra

Atli Kristinsson, skytta í handknattleiksliði Selfoss hyggst kæra Davíð Þór Óskarsson, leikmann ÍBV fyrir líkamsárás. Þetta er haft eftir Atla á www.visir.is en aganefnd Handknattleikssambands Íslands komst að þeirri niðurstöðu að nefndin ætti ekki að dæma eftir myndbandsupptöku af atvikinu. Dómarapar leiksins missti af atvikinu þannig að Davíð Þór fékk enga refsingu í leiknum, né […]

Verður Sjúkrahús Vestmannaeyja lagt niður?

Það hefur verið yfirlýst markmið velferðarráðherra að bæta eigi aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að sérfræðilæknisþjónustu. Þetta hefur margoft komið fram í gögnum frá ráðuneytinu og viðræðum ráðherra við lækna. Því kom það verulega á óvart í vikunni að heyra fréttir af því að leggja ætti Sjúkrahús Vestmannaeyja niður. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.