�?ruggur sigur á Fylki

ÍBV vann nokkuð sannfærandi sigur á Fylki í 5. umferð Pepsídeildar kvenna í kvöld en liðin áttust við á Hásteinsvellinum. Kristína Erna Sigurlásdóttir kom ÍBV yfir á 28. mínútu og var það eina markið í fyrri hálfleik. Eyjastúlkur áttu ein þrjú skot sem höfnuðu í stöng áður en Anna Þórunn Guðmundsdóttir skoraði annað marki úr […]
�?rjú fíkniefnamál komu upp í vikunni

Það var töluverður erill hjá lögreglu í vikunni sem leið og þá sérstaklega um helgina, enda töluvert um að vera í bænum í tilefni Sjómannadagsins. Skemmtanahald helgarinnar fór þokkalega fram en eitthvað var um pústra og kvartanir vegna hávaða, bæði frá einkasamkvæmum á heimilum sem og frá skemmtistöðum. Þrjú fíkniefnamál komu upp í vikunni en […]
Frumvörpin aðför að kjörum og stórt skref aftur á bak fyrir Vestmannaeyjar

Um 400 manns, sjómenn og landverkafólk, mætti á samstöðufund sem haldinn var í Höllinni í Vestmannaeyjum í dag. Fundinn héldu stéttarfélög sjómanna og landverkafólks en á fundinum var samþykkt ályktun þar sem fram kemur, að fyrirhuguð frumvörp ríkisstjórnarinnar komi til með að rýra kjör sjómanna og landverkafólks. Þá er tekið undir þá skoðun að auðlindagjald […]
Kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar skaða Vestmannaeyjar

Yfir okkur Eyjamönnum og öðrum sem lifa á sjávarútvegi vofa nú yfir frumvörp sem koma til með að skaða samfélag okkar verði þau lögfest. Þrátt fyrir fögur fyrirheit hafa áhrif þeirra ekki verið milduð og skollaeyrum hefur verið skellt við þeim tuga álita sem sérfræðingar hafa skilað inn til atvinnuveganefndar. Hvað frumvarp um veiðigjald varðar […]
Bylgja VE fékk viðurkenningu frá Slysavarnafélagi Landsbjargar

Áhöfnin á Bylgju VE 75 fékk viðurkenningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg fyrir að hafa sýnt öðru fremur góða öryggisvitund á námskeiðum Slysavarnaskóla sjómanna. Afhendingin fór fram á Sjómannadaginn en skipstjóri Bylgju VE, Óskar Matthíasson, tók við viðurkenningunni fyrir hönd áhafnarinnar. Viðurkenningin er veitt árlega og er farandbikar sem er afhentur til varðveislu um borð í viðkomandi […]
Einstakur stjarnfræðilegur viðburður

Næstkomandi þriðjudag, 5. júní höfum við einstakt tækifæri að fylgjast með afar sjaldgæfum stjarnfræðilegum atburði, sem við fáum ekki tækifæri að sjá aftur. Að kvöldi þriðjudags mun reikistjarnan Venus, sem gengur um sólina og er innan við jörðina, ganga fyrir sólu frá okkur séð og tekur það Venus tæpa 7 tíma að haltra framhjá sólunni. […]
Samstöðufundur sjómanna og landverkafólks í sjávarútvegi í dag

Í dag, mánudaginn 4. júní, verður haldinn opinn fundur í Höllinni en fundarefnið er kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar. Fundurinn hefst klukkan 13:00 en að honum standa sjómannafélögin í Vestmannaeyjum, Skipstjóra- og Stýrimannafélagið Verðandi, Sjómannafélagið Jötunn, Vélstjóradeild VM í Vestmannaeyjum og svo stéttarfélagið Drífandi. (meira…)
Hvers vegna þáðum við ekki far með gullvagni bræðranna frá Rifi?

Hluthafar í Vinnslustöðinni hf. (VSV), bræðurnir Guðmundur og Hjálmar Kristjánssynir, birtu öðrum hluthöfum og Eyjamönnum öllum opið bréf í Fréttum í síðustu viku og kölluðu það „hina hliðina á deilum innan VSV“. Nokkur atriði þar kalla á athugasemdir af hálfu okkar, fyrrverandi og núverandi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra VSV, önnur ekki. Ekkert er til dæmis að […]