Framhaldsaðalfundur á miðvikudag

Boðað hefur verið til framhaldsaðalfundar ÍBV-íþróttafélags á miðvikudaginn og hefst hann klukkan 19:30. Fundurinn verður í Týsheimilinu og á dagskrá hans er afgreiðs lagabreytinga frá síðasta fundi, kosning stjórnar og önnur mál. (meira…)

Florentina ekki með ÍBV næsta vetur?

Samkvæmt heimildum Handbolta.org er Florentina Stanciu, markvörður ÍBV, að öllum líkindum yfirgefa félagið í sumar. Í hennar stað mun Eyjakonan Dröfn Haraldsdóttir koma. Sindri Ólafsson, formaður ÍBV staðfesti þetta við Handbolti.org í hádeginu. Að hans sögn var Florentina ekki sátt með þann samning sem ÍBV bauð henni og mun að öllum líkindum leita á önnur […]

Frábær stemmning í gær

Eins og áður hefur komið fram, lagði ÍBV Breiðablik að velli í gær 4:1. Stemmningin á Hásteinsvelli hefur sjaldan verið jafn góð og í gær og tóku áhorfendur virkan þátt í leiknum. Í annað sinn mættu yfir eitt þúsund manns á Hásteinsvöll en áhorfendur í gær voru 1112 talsins og 1055 í leiknum gegn ÍA. […]

Dansað í Bárugötunni

Nemendur og starfsfólk í 1. – 5. bekk ætla að halda upp á Alþjóðlega dansdaginn með því að dansa í Bárugötunni. Til stóð að gera það á föstudaginn kl. 11:30, en sökum vætu var því frestað fram yfir helgi. Nú hefur verið ákveðið að dansinn skuli fara fram í dag mánudag kl. 11.30. (meira…)

Einstök byrjun hjá þjálfara í Eyjum

Áður en Hermann Hreiðarsson settist í þjálfarastólinn í Vestmannaeyjum fyrir þetta tímabil hafði engum þjálfara Eyjaliðsins tekist að landa sex stigum í fyrstu tveimur leikjum sínum með liðið í efstu deild. Nokkrir höfðu náð í fjögur stig en Hermann varð í gær sá fyrsti til að ná í sex stig af sex mögulegum þegar ÍBV […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.