Síðari ferð Herjólfs fellur niður í dag, sunnudag. Veður og sjólag hefur farið versnandi eftir því sem liðið hefur á daginn en samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi, er ágætis útlit fyrir siglingar á morgun, mánudag. Tilkynning þess efnis verður send út um klukkan sjö í fyrramálið og eru farþegar vinsamlegast beðnir um að fylgjast með fréttum á heimasíðu Herjólfs, www.herjolfur.is eða á Textavarpinu á síðu 415.