�?að er eins og veður sé heldur að ganga niður í Vestmannaeyjum og byrjað er að ryðja helstu götur. Enn er þó mjög hvasst og varla fært nema fyrir stóra fjórhjóla bíla. Síðasta athugun á Stórhöfða var klukkan 13.00 en þá var á austan stormur, 40 m á sekúndum og hiti rétt neðan við frostmark. Mesti 10 mínútna meðalvindur var 41 m á sekúndu og mesta hviðan 53 m á sekúndu. �?rátt fyrir þetta er ekki mikið um tjón, þakhorn losnaði á FES og hús af pallbíl fór af stað í Stóragerði. Björgunarfélagið hefur þó haft í nógu að snúast í að koma fólki á milli staða.
Veðurstofan spáir austan 20-30 m/s S-lands, snjókomu og skafrenningi, hvassast með S-ströndinni. Annars staðar austan og norðaustan 13-23, dálítil él og skafrenningur. Norðan 10-18 á morgun, en 15-23 SA-til. �?l eða snjókoma N- og A-lands, en úrkomulaust annars staðar. Dregur meira úr vindi á V-verðu landinu seinninparinn á morgun. Frost 0 til 7 stig.