Á morgun, nánar til tekið klukkan 8.37 að morgni, hefst mesti sólmyrkvi sem sést hefur frá Íslandi í 61 ár. Ef veður leyfir verður hann vel sýnilegur úr Vestmannaeyjum sem og á landinu öllu.
Sólmyrkvinn 20. mars 2015 er almyrkvi. Ferill almyrkvans liggur aðeins um 70 km austur af suðausturhluta Íslands. Í Færeyjum og á Svalbarða sést almyrkvi en á Íslandi sést verulegur deildarmyrkvi. Í Vestmannaeyjum hylur tunglið 98,1% af skífu sólar. �?etta er seinasti almyrkvi á sólu sem sést frá Evrópu til 12. ágúst 2026, en ferill þess sólmyrkva liggur í gegnum Reykjavík.
Hvenær hefst myrkvinn í Eyjum?
Í Eyjum hefst deildarmyrkvinn klukkan 8.37 með því að tunglið snertir skífu sólar hægra megin (kl. 3 ef sólin er klukka). Með sólina í 7 gráðu hæð yfir sjóndeildarhring í austri.
Hann nær hámarki klukkustund seinna eða klukkan 9.37. Myrkvanum lýkur svo klukkan 10.40 þegar tunglið færist út fyrir skífu sólar sem verður þá komin í 19 gráðu hæð yfir sjóndeildarhring í austri.
Til að fylgjast með myrkvanum er nauðsynlegt að nota viðeigandi hlífðarbúnað, svo sem sólmyrkvagleraugu. Vonandi hafa sem flestir náð sér í slík en 1000 eintök komu til Eyja og eru þau uppseld. �?að er því um að gera að deila gleraugunum með náunganum svo allir fái að upplifa þennan einstaka atburð.
Sólin verður lágt á lofti svo gæta þarf þess að hvorki fjöll né byggingar skyggi á hana þegar myrkvinn stendur yfir. Helgafell og Eldfell skyggja því á útsýni stórs hluta bæjarins og sést hann því best austan fellanna eða suður á Eyju. �??Á Haugasvæðinu verður gott útsýni, en þar ætla einmitt félagar í Stjörnufræðifélagi Vestmannaeyja að hittast til að skoða þetta fyrirbæri. Félagið stendur í stórræðum og áætlar að reisa aðstöðu á Haugasvæðinu, til stjörnu- og norðurljósaskoðunar,�?? sagði Davíð Guðmundsson aðspurður um besta staðinn til að fylgjast með.
�?egar myrkvinn er í hámarki rökkvar lítillega (mest á Austurlandi) og er þá mögulegt að koma auga á reikistjörnuna Venus austan við sólina (vinstra megin sólar).
Sólmyrkvagleraugu
Eins og fyrr sagði er nauðsynlegt að bera þar til gerð hlífðargleraugu þegar fylgjast á með sólmyrkvanum.
Flestir kannast við að hægt er að valda bruna með því að beina sólargeislum í gegnum stækkunargler. Hið sama getur gerst í auganu þegar augasteinninn brýtur sólargeislana og beinir þeim í brennipunkt á sjónhimnu augans. Ef augað horfir beint í sólina getur því myndast brunagat á versta stað, það er í miðgróf sjónhimnunnar og veldur það blindum bletti í miðju sjónsviðsins, misstórum, með tilheyrandi sjónskerðingu sem oft er varanleg. �?að er því mjög brýnt að bera gleraugun allan tímann sem horft er á sólmyrkvann.
Sólmyrkvagleraugun eru úr hágæða silfurhúðaðri sólarfilmu sem síar burt skaðlega innrauða geisla og útfjólubátt ljós. �?au hleypa aðeins hundrað þúsundasta hluta af sýnilega sólarljósinu í gegn svo öruggt er að skoða sólina með berum augum. Venjuleg sólgleraugu duga ekki til því þau hleypa of miklu ljósi í gegn (sólin er alltof björt) og einnig skaðlegum geislum.
Alls ekki nota 3D gleraugu eða venjuleg sólgleraugu!!
Gleraugun eru framleidd í �?ýskalandi samkvæmt ströngustu öryggisstöðlum. Filmurnar í gleraugunum eru fjölhúðaðar og því rispuþolnar en mikilvægt er að fara vel með þær. Gleraugun má alls ekki nota með öðrum sjóntækjum, hvorki handsjónaukum né stjörnusjónaukum.
Hvað ef það verður skýjað?
Myrkvinn stendur yfir í tvær klukkustundir. Til að eitthvað sjáist þarf ekki fullkomlega heiðskírt veður. Eina sem þarf er að sólin láti sjá sig eitthvað, jafnvel í gegnum skýin. �?ví er mikilvægt að reyna að fylgjast vel með frá upphafi til enda. Ekki gefast upp!
Ef svo illa fer að einhvers staðar sjáist alls ekki neitt er unnið að því að myrkvinn verði í beinni vefútsendingu á Stjörnufræðivefnum.
Nánar má lesa um sólmyrkvann í nýjasta tölublaði Eyjafrétta.