ÍBV og Skeljungur munu halda áfram farsælu samstarfi um mótahald fyrir 6. flokk drengja. �?etta ágæta mót hefur gengið undir nafninu Shellmótið í Eyjum frá árinu 1991, í 24 ár.
Nú hefur verið ákveðið að breyta nafninu í samræmi við áherslur Skeljungs og mun mótið heita Orkumótið í Eyjum frá og með deginum í dag. �?annig að þeir sem héldu að þeir væru á leiðinni á Shellmótið í Eyjum í sumar, eru á leiðinni á Orkumótið í Eyjum. Í framhaldi verður fljótlega opnuð ný heimasíða www.orkumotid.is og facebooksíða er komin í loftið.