Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hélt því fram á Alþingi í dag að jarðgöng til Vestmannaeyja myndu borga sig upp á þrjátíu árum. Ásmundur benti á þetta í umræðum um störf Alþingis eftir að hafa rætt stöðuna sem ríkir vegna Landeyjahafnar.
�??�?að stefnir allt í að frátafir frá höfninni verði núna 151 dagur í það minnsta frá því að hún lokaðist í lok nóvember 2014 og ekki eru líkur til þess að hún opnist aftur fyrr en um næstu mánaðamót. �?að eru fimm heilir mánuðir sem höfnin er frá og ekkert skip hefur nánast siglt þangað allan tímann, fyrir utan Víking sem hefur farið með farþega tvisvar á dag frá því í byrjun mars, eða um það leyti, en áður var höfnin algjörlega óskipgeng,�?? sagði Ásmundur.
Hann sagði þessa stöðu hafa alvarlegar afleiðingar fyrir atvinnulíf í Vestmannaeyjum, hótel og ferðaþjónustu sem sé í hraðri uppbyggingu í Eyjum eins og annars staðar á landinu.
�??�?að er í rauninni í algjört óefni komið með þær samgöngur, sem eru svo góðar þegar höfnin er annars í lagi, sagði Ásmundur sem sagði þetta ástand hafa orðið til þess að menn hefðu dustað rykið af gömlum hugmyndum um jarðgöng til Vestmannaeyja.
�??�?egar menn skoða kostnaðinn af því að leggja jarðgöng til Vestmannaeyja og reka Herjólf frá Landeyjahöfn í 30 ár kemur í ljós að á 30 árum þyrfti að byggja tvær nýjar ferjur til Vestmannaeyja, sem er um 10 milljarða kostnaður. Framlag frá ríkissjóði í 30 ár er 30 milljarðar og sanddæling við höfnina 9 milljarðar. �?etta kostar um 50 milljarða á 30 árum en gera má ráð fyrir að jarðgöng kosti á bilinu 30�??50 milljarða,�?? sagði Ásmundur og sagði að borga þyrfti einu sinni fyrir göngin en viðhald við höfnina og smíði á nýjum ferjum þyrfti að borga aftur og aftur á 30 ára fresti.
�??�?að þarf auðvitað að semja við náttúruna um hvort það gangi að gera jarðgöng til Vestmannaeyja. En það er ömurleg staða í samgöngumálum til Vestmannaeyja sem Vegagerðin verður að koma í lag sem fyrst.�??

visir.is greindi frá