Málagagn útskriftarnemenda Stýrimannaskólans í Reykjavík, Kompás er komið út. �?að er gefið út árlega, sem fjáröflun til útskriftarferðar nemenda skólans. Í ár var blaðið gefið út í 2600 eintökum og var því dreift um land allt, þar á meðal með Sjómannadagsblaðinu Víking, en í fyrsta skipti er það einnig gefið út á netinu. Ritstjóri er Eyjamaðurinn Guðni Freyr Sigurðsson.
Blaðið samanstendur af viðtölum og greinum sem að tengjast sjómennsku og sjávarútvegi á einn eða annan hátt. En einnig eru þar fréttir af starfi nemendafélagsins og af síðustu útskriftarferð skólans svo eitthvað sé nefnt. Lagt var upp með að hafa blaðið fjölbreytt og skemmtilegt, með efni sem myndi hæfa flestum sem læsu það.
Mikill metnaður fór í hönnun og umbrot á blaðinu, sem að mati margra er talið vera með þeim flottari síðustu ár og væntum við þess að næsti útskriftarhópur skili af sér vönduðu og skemmtilegu Kompásblaði. Sædís Eva Birgisdóttir ritstjóri Sjávarafls, átti mikinn þátt í hönnun og umbroti blaðsins og á hún bestu þakkir skildar fyrir frábæra ráðgjöf.