Í síðustu viku var gengið frá afhendingu Ingunnar AK til Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Framvegis ber skipið nafnið Ísleifur VE.
Salan á Ingunni er liður í endurnýjun á fiskiskipaflota HB Granda, segir á heimasíðu fyrirtækisins. Hið nýja og glæislega skip, Venus NS, kemur í stað Ingunnar og í desember nk. verður Faxi RE afhentur Vinnslustöðinni. Um svipað leyti er von á Víkingi AK, annarri nýsmíði félagsins í Tyrklandi, til landsins. Framtíðaráform HB Granda eru að gera tvö skip út til uppsjávarveiða og verður Lundey NS lagt þegar Víkingur kemur til landsins.
Ingunn var smíðuð árið 2000 fyrir HB á Akranesi og hefur frá fyrstu tíð verið hið mesta happafley. Allan þennan tíma hefur Guðlaugur Jónsson, sem nú er skipstjóri á Venusi, verið skipstjóri á Ingunni og það fór vel á því að afhendingin var handsöluð af Guðlaugi og Helga Geir Vilhjálmssyni sem verður skipstjóri á Ísleifi á móti Eyjólfi Guðjónssyni.