Landsbankinn hagnaðist um 12,4 milljarða króna eftir skatta á fyrri helmingi árins 2015 samanborið við 14,9 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið 2014 en það kemur fram í tilkynningu sem Landsbankinn sendi frá sér í gær.
Steinþór Pálsson, bankastjóri segir: �??Afkoma Landsbankans fyrstu sex mánuði ársins er með ágætum, tekjusamsetningin betri en áður og fjárhagsstaðan er traust. Bankinn hefur notið góðs af hagstæðri þróun í efnahagslífinu og á fjármálamörkuðum og viðskipti hafa verið að aukast umtalsvert. Markaðshlutdeild bankans í útlána- og innlánastarfsemi og í markaðsviðskiptum heldur áfram að aukast. Samkvæmt mælingum Gallup í júní mælist Landsbankinn með mestu markaðshlutdeildina á einstaklingsmarkaði, eða 35,1% og hefur aldrei mælst hærri. �?etta sýnir að viðskiptavinir kunna að meta það sem Landsbankinn er að gera.
Í lok mars sameinaðist Sparisjóður Vestmannaeyja við Landsbankann. Samþætting starfseminnar hefur gengið vel og leggur bankinn áherslu á að veita öfluga fjármálaþjónustu á starfssvæðum sparisjóðsins til hagsbóta fyrir íbúa og atvinnulíf.
Í júlí hækkaði alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor’s (S&P) lánshæfiseinkunn bankans í BBB- með jákvæðum horfum. Landsbankinn er nú kominn í fjárfestingarflokk og það eykur traust til bankans á mörkuðum og styður við fjármögnun hans í nánustu framtíð, bæði á innlendum og erlendum mörkuðum.
Áætlanir stjórnvalda um losun fjármagnshafta munu að öllum líkindum hafa töluverð áhrif á ýmsar stærðir í efnahagsreikningi bankans. Landsbankinn er vel undir það búinn að mæta útflæði innlána í eigu slitabúanna sem óhjákvæmilega mun leiða af losun fjármagnshaftana.
�?að sem af er árinu hefur Landsbankinn unnið að innleiðingu nýrrar stefnu sem nær til ársins 2020 og felur hún í sér umfangsmiklar breytingar sem ætlað er að skila árangri bæði til skemmri og lengri tíma. Stefnan felur í sér enn frekari hagræðingu í rekstri, m.a. með því að koma miðlægri starfsemi bankans undir eitt þak en Landsbankinn hefur tekið sér frest til að vega og meta þau sjónarmið sem fram hafa komið um fyrirhugaða nýbyggingu. Í stefnunni er lögð áhersla á að veita viðskiptavinum fyrirmyndarþjónustu, þróa rafræna þjónustu, auka skilvirkni stoðeininga, móta nútímalegra tækniumhverfi og hagkvæman efnahagsreikning um leið og áhættu er haldið innan marka. �?á er sérstök áhersla lögð á árangursmiðaða menningu innan bankans. Saman eiga þessir þættir sem brotnir hafa verið niður í 7 verkstrauma, að skila ánægðum og tryggum viðskiptavinum og starfsmönnum, hagkvæmum rekstri og ásættanlegri arðsemi eigin fjár til framtíðar.”