Fyrsta lundapysja sumarsins loksins fundin. �?að voru þau Erna og Sigurður sem fundu hana á vappi inni í Herjólfsdal. Pysjan var mjög smá en þó ekki dúnuð. Hún var 167 grömm að þyngd og vænglengdin 120 mm. Var henni að sjálfsögðu boðin loðna og tók hún vel til matar síns og virkar spræk þó smávaxin sé. Tóti tók vel á móti henni og spurði hana fjöðrunum úr hvað væri að frétta úr lundabyggðinni.
Nú er um að gera að taka bryggjurúnt á kvöldin með pappakasana klára í skottinu og hafa augun hjá sér.