Í dag, 30. september 2015, er síðasti vinnudagur Áka Heinz Haraldssonar í Ráðhúsinu. Áki hefur starfað í Ráðhúsinu öðrum lengur, hvorki meira né minna en í 42 ár. Sjálfur segir Áki að hann hafi valið daginn í dag sem síðasta vinnudag á vinnumarkaði þar sem faðir hans hefði orðið 104 ára í dag og því væri auðvelt fyrir hann að muna hvenær hann lét af störfum.
Áki er hafsjór af fróðleik og þekkir menn og málefni betur en flestir. �?að hefur sannarlega komið sér vel fyrir marga. Áki er einnig mikið gæðablóð, einlægur, kíminn og það þykir einhvern veginn öllum vænt um Áka.
Samstarfsfélagar kveðja Áka með söknuði en jafnframt þakklæti fyrir gott starf í þágu sveitarfélagsins, dýrmæta vináttu og góðar samverustundir. Nú taka við nýir tímar hjá Áka og óskum við honum velfarnaðar í hvívetna.