Theodór Sigurbjörnsson, hornamaður bikarmeistara ÍBV í Olís-deild karla í handbolta, er, að öðrum ólöstuðum, besti leikmaður deildarinnar í fyrstu umferðum hennar.
Hann hefur farið algjörlega á kostum með Eyjaliðinu og skorað 52 mörk í fyrstu fimm leikjum liðsins eða ríflega tíu mörk í leik. Hann hefur bætt skotnýtingu sína mikið sem skilar sér augljóslega í fleiri mörkum og þá er hann að skora fleiri mörk að meðaltali í leik en áður á sínum ferli.
�??�?g æfði alveg gríðarlega vel í sumar og það er að skila sér,�?? segir Theodór við Fréttablaðið aðspurður hvers vegna hann getur ekki hætt að skora við upphaf móts.
�??�?g er að fá sama skotfjöldann og í fyrra en er núna að bæta nýtinguna og það skilar sér í fleiri mörkum. Skotnýtingin var ekkert sem pirraði mig í fyrra en hún var eitthvað sem ég mátti bæta,�?? segir hann.
Tröllatrú á liðinu
Eyjamenn komu upp í efstu deild á ný fyrir tveimur árum og hafa verið með læti síðan. �?eir urðu Íslandsmeistarar sem nýliðar í fyrra og bikarmeistarar fyrr á þessu ári.
Liðið styrkti sig vel fyrir tímabilið og var spáð Íslandsmeistaratitlinum. �?að virtist vera að trufla ÍBV eitthvað í fyrstu leikjunum, en Eyjamenn töpuðu fyrir Reykjavíkurliðunum Val og Fram í byrjun móts.
�??Spáin truflaði mig ekkert persónulega, en ég veit ekki með hina. Við töpuðum fyrsta leiknum bara á klaufaskap en sá síðari voru algjör vonbrigði,�?? segir Theodór, en Eyjamenn eru síðan búnir að vinna þrjá leiki í röð.
�??Síðan þá hafa tímasetningar á öllum okkar kerfum verið betri og varnarleikurinn alltaf sterkari. Hann skilar auðveldum hraðaupphlaupsmörkum. �?g hef gífurlega trú á þessu liði og við ættum að geta gert góða hluti. Hópurinn er ekki stór og við megum ekki við fleiri skakkaföllum, en liðið er mjög gott.�??
Ekki út strax
Theodór hefur bætt sinn leik jafnt og þétt undanfarin ár og aukið meðalfjölda marka sinn á hverju ár síðan hann var í 1. deildinni. Hann er búinn að sanna sig sem algjör stjarna í Olís-deildinni en ákvað samt ekki að fara út í atvinnumennsku í vetur.
�??�?að var alveg áhugi en ég var staðráðinn að vera heima. Mér fannst ég þurfa annað tímabil til að fá stöðugleika í minn leik. �?g tók þessa ákvörðun eiginlega strax eftir síðasta tímabil þannig það var ekkert inn í myndinni að fara út,�?? segir Theodór, sem vill taka stærra skref en margir aðrir sem hafa farið út á undanförnum árum þegar hann loks tekur skrefið.
�??�?g vil fara í almennilega deild þegar ég fer út og vil geta staðið mig þar. �?að er klárlega mitt markmið að komast í atvinnumennskuna,�?? segir hann.
Hann segir engin lið hér heima hafa reynt að lokka sig frá Eyjunni. �?að hefði líklega verið óþarfa símtal hjá liðunum. Maður sem býr á Hásteinsvegi í Vestmannaeyjum yfirgefur tæplega sína menn fyrir annað lið hér heima.
�??�?g er svo mikill Eyjamaður að ég myndi örugglega ekki spila með öðru liði hér heima,�?? segir Theodór.