Á miðnætti þann 15. október 2015 hefst verkfall sjúkraliða og SFR á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU). �?etta er fjórða verkfall stéttarfélaga sem skellur á stofnunina á innan við 12 mánuðum. Verkfallið mun hafa víðtæk áhrif á starfsemi stofnunarinnar, þar má sérstaklega nefna bráðaþjónustu stofnunarinnar þ.e. lyflækningardeildina á Selfossi og sjúkradeildina í Vestmannaeyjum.
Reynt hefur verið að útskrifa af deildunum eins og mögulegt er. Verkfallið hefur einnig mikil áhrif á heimahjúkrun stofnunarinnar á Suðurlandi, en þjónusta heimahjúkrunar er nú fullbókuð og þjónustusvæðið víðfemt. Stjórnendur á HSU munu tryggja öryggi skjólstæðinganna að fremsta megni og munu sækja um þær undanþágur sem þörf krefur. �?etta mun þó óneitanlega draga úr þeirri þjónustu sem HSU hefur tök á að veita. Sjúklingar, aðstandendur og íbúar Suðurlands eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum á heimasíðu HSU.
Fyrir hönd framkvæmdastjórnar HSU,
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri.