Nú í október mun �?jóðleikhúsið leggja land undir fót og bjóða börnum víðsvegar um landið að njóta hinnar feykivinsælu Sögustundar. �?jóðleikhúsið hefur undanfarin sjö ár boðið börnum í elstu deildum leikskóla á höfuðborgarsvæðinu árlega í leikhúsið, til að njóta leiksýninga sem nefnast Sögustund.
�?jóðleikhúsið er leikhús allra landsmanna og þess vegna hefur verið ákveðið að fara með Sögustundina í leikferð og gefa börnum á landsbyggðinni tækifæri á að kynnast töfraheimi leikhússins. Í sýningunni kemur fram brúðugerðarmeistarinn Bernd Ogrodnik ásamt brúðum sínum en umsjón hefur �?órhallur Sigurðsson leikstjóri.
Leikferðin hefst með heimsókn til Vestmannaeyja þann 20. október þar sem tekið verður á móti börnum í leikhúsi bæjarins. Í kjölfarið verða aðrir landshlutar heimsóttir.
Með Sögustund vill �?jóðleikhúsið leggja sitt af mörkum til að kynna börnum heim leikhússins, því leikhúsferðir geta veitt ungum sem öldnum mikla gleði, örvað þroska og eflt hæfileika til að takast á við lífið og tilfinningar okkar.