Hrekkjavaka er haldin hátíðlega þann 31. okober ár hvert en þá klæðir fólk sig upp í búninga og skreytir á ógnvekjandi hátt. Skreytt grasker eru staðalímynd hrekkjavöku ásamt öðrum hlutum sem þykja ógnvekjandi. Alltaf er að verða vinsælla á Íslandi að taka þátt í þessari gleði og margir sem halda veislur og boð með þetta sem þema. Vestmannaeyingar eru ekkert undanskildir og margir sem tóku þátt, stórir sem smáir.

Við fengum nokkra Eyjamenn til að senda okkur myndir af þeirra Hrekkjavöku og má sjá þær hér að ofan.