Eins og undanfarin ár stóð Landssamband slökkviliðs og sjúkraflutningsmanna, fyrir eldvarnaviku í grunnskólum landsins. Sérstök áhersla var lögð á kynningu brunavarna fyrir 8 ára börn og fengu þau sérstakt heimaverkefni til úrlausnar með foreldrum sínum. Lausnir verða síðan metnar, dregið úr réttum lausnum og vegleg verðlaun veitt. �??I tilefni vikunnar var börnum hér í Eyjum boðið í heimsókn á slökkvistöðina, þar sem farið var yfir helstu þætti í brunavörnum heimilisins.�?á var sýndur búnaður reykkafara og hvernig hann er undirbúinn fyrir reykköfun, einnig var kennarinn látin slökkva eld með eldvarnateppi

�?ll fá börnin gefins bók um slökkviálfana Loga og Glóð og illvirkjann Brennu-Varg en bókin heitir einmitt Brennu-Vargur og er spennusaga, en í henni eru líka góðir fróðleiksmolar fyrir börnin um eldvarnir.
Í framhaldi af þessari heimsókn barnanna viljum við slökkviliðsmenn kvetja íbúa í Eyjum að yfirfara eftirfarandi: Reykskynjara, Slökkvitæki og eldvarnateppi. Einnig er áríðandi að fjölskyldan hugleiði flóttaleið ef eitthvað kemur uppá.
Við slökkviliðsmenn óskum bæjarbúum Gleðilegrar jóla og farsældar á nýju ári �?ökkum alla velvild í okkar garð.


Ragnar �?ór Baldvinsson slökkviliðsstjóri.