Opið hús verður hjá veitingastaðnum Tanganum fimmtudaginn 3. desember. Síðastliðna mánuði hefur verið unnið að breytingum á Tanganum og vilja forsvarsmenn hans bjóða alla Eyjamenn velkomna á fimmtudaginn til að skoða breytingarnar og þiggja í leiðinni léttar veitingar og drykki að hætti hússins.
Opið hús verður á Tanganum milli 19 og 21 en gestum er að sjálfsögðu velkomið að dvelja lengur við og njóta þess að setjast í rólegheitum á nýjan og breyttan Tanga.
�??Hugmyndin á bak við nýjan og breyttan Tanga er að fólk geti komið og átt notalegar stundir hjá okkur hvort sem er í hádeginu, á daginn eða um kvöldið. Við erum með fullt af frábærum réttum á boðstólum og margir hverjir tilvaldir til að deila með vinum og vandamönnum. Okkur fannst vanta eins konar bistró í Eyjum og settum því staðinn þannig upp og hönnuðum hann með það að sjónarmiði�??, segir Laila Sæunn Pétursdóttir sem annaðst markaðs- og kynningarmál Tangans.
Tanginn er staðsettur á Básaskersbryggu 8 í Vestmannaeyjum og verður opinn núna í desember á virkum dögum og sunnudögum frá 11 til 23 en um helgar frá 11 til 1. Núna á föstudaginn verður því opið til 1 og geta Eyjamenn strax farið að bóka sig í mat eða skellt sér í drykk í fallegu umhverfi.
�??Á laugardaginn bjóðum við fólki aftur í opið hús fyrir þá sem komast ekki á fimmtudaginn. Við bjóðum þá upp á kaffi og kruðerí fyrir gesti og gangandi milli 14 og 17 svo að allir hafi tækifæri á að bregða nýja Tangann augum�??, segir Laila enn fremur.
Á Tanganum verða fjölmargir girnilegir réttir og verður einnig í boði sérstakur jólaplatti nú yfir aðventuna. Borðapantanir fara fram í síma 414-4420 og á [email protected].
Allar nánari upplýsingar:
Laila Sæunn Pétursóttir, sími 693-0175 email: [email protected]