Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum hefur óskað eftir því að sett verði á hættustig fyrir Vestmannaeyjar og hefur Ríkislögreglustjóri orðið við því. Hættustig þýðir að öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúrvöldum þó ekki svo alvarlega að um neyðarástand sé að ræða. Nú er fárviðri í Vestmanneyjum og þök hafa losnað af nokkrum húsum í Eyjum í fjórum hverfum auk frekara tjóns. Veginum út á Eiði hefur verið lokað við Friðarhöfn vegna foks á byggingarefni. Lögregla beinir þeim tilmælum til fólks að halda sig innandyra og halda sig hlémegin í húsum sínum. Ef aðstoðar er þörf skal hringt í 112.