Sjálfboðaliðar dreifa áburði og fræi í hlíðum Eldfells mánudaginn 11. júní kl. 17:30 með Guðmundu Bjarnadóttur í broddi fylkingar. Allir velkomnir með græna fingur og uppgræðslugleði í hjarta. Guðmunda hvetur væntanlega liðsmenn í græna hernum sínum til að hafa með sér hlífðarhanska.
Landgræðslan í Eldfelli á rætur að rekja til ákvörðunar Vinnslustöðvarinnar um að veita 10 milljónir króna til verksins í tilefni sjötugsafmælis síns 2016 í samstarfi við Vestmannaeyjabæ. Dreift var tvisvar í fyrrasumar og sama verður gert í ár. Guðmunda Bjarnadóttir situr í stjórn Vinnslustöðvarinnar og er verkefnisstjóri af hálfu VSV.
Skeljungur gaf áburð til dreifingar í fyrra og gerir það aftur í ár. Fyrirtækið er þar með orðið beinn þátttakandi í þessu græna og góða verkefni sem hefur skilað miklum, sýnilegum og gleðilegum árangri.