:: segir Trausti Hjaltason, reynslumesti bæjarfulltrúi nýrrar bæjarstjórnar

Það leyndi sér ekki að spenna var í Einarstofu á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar á fimmtudaginn. Nýr bæjarstjóri Vestmannaeyja Íris Róbertsdóttir var fjarvernadi á fyrsta fundinum en áður hafði meirihlutinn beðið um tilfærslu á fundinum.
Samkvæmt lögum skal reyndasti bæjarfulltrúinn boða til fyrsta bæjarstjórnarfundar. Trausti Hjaltason hefur þann titil og boðiði til funda á fimmtudaginn. Eftir að upp kom í fjölmiðlum að Trausti Hjaltason hefði ekki gengist við því að færa fundinn að beiðni meirihlutans, birti hann grein á vef Eyjafrétta þar sem hann sagði meðal annars, „Í ljósi umfjöllunar á vefmiðlum þar sem grein er frá því að undirritaður hafi ekki orðið við óskum meirihlutans um að breyta fundartíma bæjarstjórnar vil ég taka fram að mjög eðlilegar skýringar eru á boðuðum fundartíma fyrsta bæjarstjórnarfundar nýrrar bæjarstjórnar. Samkvæmt 8. gr bæjarmálasamþykktar þá eru bæjarstjórnarfundir haldnir á fimmtudögum kl. 18:00. Um það ríkir einnig löng hefð.
Um boðun fyrsta bæjarstjórnarfundar nýrrar bæjarstjórnar eru skýrar reglur og er ramminn nokkuð þröngur eða einungis um 15 dagar frá því að nýkjörin bæjarstjórn hefur tekið við 15 dögum eftir kjördag. Þetta er síðasti mögulegi fimmtudagurinn til að halda bæjarstjórnarfund til að hann sé löglega boðaður. Það hefur því alltaf legið í loftinu að þessi tími yrði fyrir valinu.
Best og eðilegast hefði verið, í ljósi þess hversu miklu máli þetta skiptir, að sá bæjarfulltrúi sem er erlendis hefði greint mér frá þessari utanlandsferð með betri fyrirvara, t.d. hefði fimmtudagurinn á undan vel gengið,“ greindi Trausti frá á vef Eyjafrétta ásamt því að gera grein fyrir þessu á bæjarstjórnarfundinum.
Sjálfstæðismenn kusu gegn Írisi
Einnig kusu allir þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokks gegn tillögunni um að Íris yrði næsti bæjarstjóri á fundinum og greindu frá því að þau hefðu vilja að Elliði Vignisson gegni því aðeins áfram í ljósi umfang verkefna sem framundan eru sem tengjast Herjólfi og Hvalasafninu.
Þetta hefur verið gert í nafni lýðræðis og valddreifingar
Sjálfstæðisflokkurinn kom með nokkrar tillögur að formönnum og varaformönnum í fastanefndir en meirihlutinn hélt sig við sitt fólk. Þetta fordæmdu Sjálfstæðismenn í ljósi venju sem skapast hefur. „Þegar minnihlutinn hefur átt 3 af 7 bæjarfulltrúum hefur venjan verið sú að minnihlutinn hefur fengið varaformennsku í fastanefndum bæjarins. Það var til dæmis þannig þegar Eyjalistinn var með 3 menn 2010-2014 og einnig kjörtímabilin þar á undan þegar V-listinn var með 3 menn. Þetta hefur verið gert í nafni lýðræðis og valddreifingar. Það er því sérstakt að nú þegar þeir flokkar sem töluðu mjög hátt fyrir kosningar um lýðræðisleg vinnubrögð og faglega stjórnun komast til valda í meirihluta þá sé eitt af þeirra fyrstu verkum að brjóta áralanga venju hvað varðar skipan varaformanna í fastanefndum. Þetta kom mér verulega á óvart og fannst mér vera fátt um svör þegar við leituðum eftir skýringum á þessari stefnubreytingu, “ sagði Trausti í samtali við Eyjafréttir þegar hann var spuður út í málið. „Einnig vil ég vekja athygli á því að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ákváðu að taka ekki sæti í fastanefndunum, það var gert til að fleiri raddir fengju hljómgrunn í bæjarkerfinu og til að hleypa að bæði reynslumiklum fulltrúum í bland við nýja og áhugasama fulltrúa. Bæjarfulltrúar verða síðan í góðum samskiptum við nefndarfulltrúa og öfugt,“ sagði Trausti.