Á þriðjudaginn var gengið frá frá afhendingu ísfisktogarans Ottó N. Þorlákssonar til Ísfélags Vestmannaeyja. Skipið mun halda nafni sínu áfram en einkennisstafir þess verða VE-5.
Í tilkynningu frá HB Granda segir að Ottó N. Þorláksson hafi verið farsælt aflaskip, smíðað í Stálvík í Garðabæ árið 1981. Skipstjóri þess hefur verið Jóhannes Ellert Eiríksson en hann tók við togaranum fyrir 24 árum og stýrir nú Viðey, nýju skipi HB Granda.