Eyjastelpurnar Andrea Gunnlaugsdóttir, Bríet Ómarsdóttir, Harpa Valey Gylfadóttir og Linda Björk Brynjarsdóttir tóku þátt í European Open með U-16 ára landsliðinu í handbolta sem haldið var í Gautaborg, Svíþjóð, 2.-6. júlí sl.
Þetta er í fyrsta skipti sem mótið er haldið fyrir U-16 ára landslið en hingað til hefur það verið fyrir U-18 landslið. Eftir riðlakeppnina voru þær í 3. sæti en enduðu svo í 1. sæti í milliriðli sem tryggði þeim leik um 9. sætið á mótinu. Við eigum því flotta fulltrúar þarna.