Vestmannaey VE kom úr sinni 44. veiðiferð á árinu sl. þriðjudagskvöld. Skipið var með fullfermi af ýsu og þorski eða um 70 tonn. Þessi veiðiferð var merkileg að því leyti að með henni fór aflaverðmæti skipsins yfir 10 milljarða múrinn en afli skipsins á þeim rúmlega 11 árum sem það hefur verið gert út er 39.440 tonn. Það er útgerðarfélagið Bergur-Huginn, dótturfélag Síldarvinnslunnar, sem gerir Vestmannaey út.
Að sjálfsögðu var boðið upp á tertu um borð í Vestmannaey þegar 10 milljarða múrinn hafði verið rofinn. Á myndinni er Birgir Þór Sverrisson skipstjóri að búa sig undir að skera fyrstu sneiðina. Ljósm. Arnar Richardsson

Skipstjóri á Vestmannaey frá upphafi hefur verið Birgir Þór Sverrisson og sló heimasíðan á þráðinn til hans og spurði hverju mætti þakka þennan ágæta árangur sl. 11 ár. „Ég veit það ekki, en ugglaust má nefna ýmsa samverkandi þætti. Það hefur ávallt verið lögð áhersla á að nýta kvótann eins vel og kostur er á og einnig hefur verið kappkostað að fá sem hagstæðust verð fyrir aflann. Skipið hefur reynst frábærlega vel og áhöfnin er samhent og dugleg – það er varla hægt að hugsa sér betri mannskap. Fyrstu árin voru fiskverð stundum há en kvóti takmarkaður en eftir að Síldarvinnslan festi kaup á útgerðarfélaginu hefur meiri kvóti verið til ráðstöfunar og mikil fiskgegnd að undanförnu hefur hjálpað til. Við höfum ekki róið ofboðslega stíft en sannleikurinn er sá að við höfum fiskað fyrir tuttugu földu kaupverði skipsins á þessum 11 árum. Það er bara nokkuð gott. Fyrstu árin var aflaverðmæti gjarnan 750 til 800 milljónir á ári en nú hin síðari ár hefur það verið um milljarður. Eitt árið fórum við reyndar í 1.200 milljónir. Bergur – Huginn gerir einnig út systurskipið Bergey og aflinn hefur verið svipaður hjá þeim. Vestmannaey hóf veiðar í apríl 2007 en Bergey ekki fyrr en í ágúst þannig að ég reikna með að þeir rjúfi 10 milljarða múrinn seint á árinu,“ segir Birgir.

Vestmannaey og Bergey hafa verið að ýsuveiðum að undanförnu út af Ingólfshöfða og á Stokksnesgrunni. Samkvæmt venju var afli heldur tregur fram eftir júní en síðustu vikurnar hefur verið mok. „Ýsan fer alltaf að veiðast eftir að hún kemst í síldarhrognin,“ segir Birgir.

Frétt af vef Síldarvinnslunar